BR 30/4 C Bp Pack 36/75 er 14 kg þráðlaus gólfþvottavél fyrir harða fleti. Litíumjónarafhlaðan endist í allt að 30 mínútur við venjulega notkun. Vélin þrífur allt að 200 m² á klukkustund. Rúllan snýst 1.500 sinnum á mínútu og þrýstingur hennar á gólfið er 100 g/cm², eða tífaldur miðað við venjulega moppu samkvæmt framleiðanda. Vélin sogar vatn upp bæði áfram og aftur á bak. Lyfta má sogsköfunum svo hreinsilausnin fái lengri tíma til að vinna á þrálátum óhreinindum. Gólf þorna strax eftir þrif. Vélin hentar í litlar verslanir, veitingastaði, þjónustustöðvar, stórmarkaði, salerni og eldhús, eða sem viðbót við stærri gólfþvottavélar.