NT 40/1 Tact Bs hentar til að ryksuga gólf og búnað í bakaríum og, með aukahlutum, einnig ofna. Vélin er sprengivarnarvottuð og ætluð til að soga upp mjölryk. Sjálfvirk Tact síuhreinsun viðheldur sogkrafti þegar mikið fínt ryk er sogað upp. Sterkar málmlæsingar halda geyminum föstum. Snúningsrofi auðveldar stjórnun og vinnuvistvænt ýtihandfang auðveldar flutning á milli vinnusvæða.