KM 70/20 C 2SB er handknúin sópvél með tveimur hliðarburstum og rúllubursta fyrir þrif innan- og utandyra. Afköstin eru allt að níföld á við hefðbundinn sóp samkvæmt framleiðanda. Rúlluburstinn er stillanlegur í sex þrepum og hliðarburstarnir þrepalaust eftir undirlagi. Sía dregur úr rykmyndun við sópun. Hægt er að stilla ýtihandfangið eftir hæð notanda og festa fötu, ruslatöng eða önnur áhöld á Home Base festinguna. Vélin tekur lítið pláss í geymslustöðu.