BP 6 Deep Well nýtir grunnvatn úr djúpum brunnum eða borholum. Vatnið má nota til garðvökvunar eða, með þrýstirofa, sem nytjavatn í húsinu. Dæluhús og snittuð tengi eru úr ryðfríu stáli. Innbyggð forsía og undirstaða verja vatnsinntakið gegn óhreinindum við uppsetningu og í notkun. Með 30 m reipinu sem fylgir má láta dæluna síga tryggilega niður. Sérstakur rofi á enda 30 m rafmagnssnúrunnar auðveldar stjórnun. Innbyggður einstefnuloki og tengisett fyrir ¾″ og 1″ slöngur fylgja.