OC 4 er færanlegur rafhlöðuknúinn þrýstiþvottabúnaður frá Kärcher. Fylltu 8 l vatnsgeyminn og byrjaðu að þrífa þar sem hvorki er aðgangur að rafmagni né vatnslögn. Stúturinn veitir milda en áhrifaríka hreinsun eftir hjólreiðar, í útilegu, eftir gönguferð eða í garðinum. LED-ljós sýnir stöðu og hleðslu rafhlöðunnar. Tækið og aukahlutirnir rúmast í tómum vatnsgeyminum. Gormaslangan er 2,8 m löng og úðabyssunni má smella fastri. Úrval aukahluta fæst fyrir fleiri notkunarmöguleika.