BR 30/4 C Ep Adv er álíka meðfærileg og upprétt ryksuga. Rúllan snýst um 1.500 sinnum á mínútu og þrýstingur hennar á gólfið er um tífalt meiri en við handskúrun. Vélin sogar vatn upp bæði áfram og aftur á bak. Lyfta má sogsköfunum svo hreinsilausnin fái lengri tíma til að vinna á þrálátum óhreinindum. Handstýrður sogbúnaður nær inn í horn. Vélin hentar meðal annars í minni verslanir, veitingastaði, þjónustustöðvar, stórmarkaði, salerni og hótel.