NT 65/2 Ap er öflug vot- og þurrsuga með hálfsjálfvirkri ApClean síuhreinsun. Aðgangur að stóru flötu fellingasíunni er í gegnum lok á mótorhúsinu. Síuhreinsunin viðheldur sogkrafti í löngum vinnulotum og lengir endingartíma síunnar. Rafræn fyllingarvöktun kemur í veg fyrir að geymirinn yfirfyllist við votsog. Vökvi er tæmdur um olíuþolna frárennslisslöngu. Smellutengi auðveldar skipti á fylgihlutum. Á vélinni eru festingar fyrir slöngu og aukahluti, verkfærabakki, tvö stór föst hjól og tvö stýrihjól.