EB 30/1 er þráðlaus rafmagnssópur með fótrofa sem nær að sópa lausum óhreinindum í allt að 2 mm fjarlægð frá köntum. Útdraganlegt handfang er stillanlegt eftir hæð notanda og hjöruliður auðveldar að stýra sópnum í allar áttir. Hægt er að læsa honum í uppréttri stöðu á milli verka. Aðeins 9 cm hæð gerir kleift að sópa undir ofna og húsgögn. Litíumjónarafhlaðan endist í um 40 mínútur á teppum og um 50 mínútur á hörðum gólfum. Hraðhleðslutækið sem fylgir hleður rafhlöðuna á innan við tveimur klukkustundum.