NT 22/1 Ap Te Adv L hentar fagfólki við ræstingar, þrif á ökutækjum að innan og önnur þrif. Hún heldur jöfnu sogi við söfnun ryks og grófra óhreininda og rakaþolið PES-síuhylki hentar við sog á vökva. Sogslangan tengist við vélarhausinn svo geymirinn nýtist vel. Vélin er létt og er með hálfsjálfvirka Ap-síuhreinsun og innstungu sem ræsir og stöðvar suguna með tengdu verkfæri. Rafleiðandi beygjur og sogslanga draga úr hættu á rafstöðuhleðslu. Bílastútur, áklæðisstútur, rifustútur, sogbursti og fjölnotabursti fylgja.