RCW 2 Extra+ sér sjálfvirkt um reglulegan gluggaþvott. Öflugt sog heldur gluggaþvottavélmenninu föstu á sléttu gleri og speglum, meðal annars á stórum og torsóttum flötum. Vélmennið fer skipulega yfir flötinn og tveir skynjarar greina ramma og hindranir. Tveir snúningsdiskar með örtrefjapúðum líkja eftir handþurrkun og tveir úðastútar með ómbylgjutækni dreifa hreinsivökvanum í fínum úða án þess að hann drjúpi. Velja má á milli fjögurra sjálfvirkra stillinga og einnar handvirkrar með fjarstýringu. Ljós- og raddmerki gefa til kynna stöðu tækisins. Meðfylgjandi RM 503 hreinsivökvi fjarlægir óhreinindi, þornar án ráka og hjálpar regnvatni að renna hraðar af. Varaafhlöðu og öryggislínu er ætlað að halda vélmenninu á glerinu ef rafmagn fer af.