HDS 10/21-4 MXA er afkastamikil heitavatnsháþrýstidæla með sjálfvirku slönguhjóli og 20 m teflonhúðaðri Ultra Guard háþrýstislöngu. Hægt er að vinda slönguna inn og út í allt að 45° horni. Þriggja stimpla ásdæla með keramikstimplum, hæggengur fjögurra póla vatnskældur rafmótor og bættur brennari skila miklum afköstum. Eco!Mode stillir vinnuhitann á 60 °C og dregur samkvæmt framleiðanda úr eldsneytisnotkun um að minnsta kosti 20% miðað við vinnu við 90 °C. Vélin er með EASY!Force Advanced háþrýstibyssu, 1.050 mm úðarör, Servo-Control, tvo hreinsiefnatanka, EASY!Lock-hraðtengi og geymslu fyrir fylgihluti. Einn rofi stýrir aðalaðgerðum.